09.10.2026
Í síðasta pistli okkar kom Guðríður Norðfjörð við sögu en hún undirbjó og stofnaði fyrsta kvenskátafélagið á Akureyri. Það var árið 1923. Guðríður var Jónsdóttir og kom ásamt Snæbirni Norðfjörð frá Ísafirði til Akureyrar vorið 1921. Um haustið voru þau gefin saman í hjónaband og eftir það var hún Guðríður Norðfjörð.
03.09.2026
Kvenskátafélag var fyrst stofnað á Akureyri 2. apríl 1923 í bíóhúsinu á Oddeyri. Félagið hlaut nafnið Valkyrjan. Guðríður, stundum skrifuð Jónsdóttir, stundum Jóhannesson og stundum Norðfjörð, hafði veg og vanda að stofnun félagsins og oftlega sögð stofnandi þess. Um undirbúninginn segir m.a. í stofnfundargerðinni:
30.07.2026
Líkt og skjalið frá okkur í júní kemur skjalið í júlí úr altarinu í Bægisárkirkju. Það er allt annars eðlis og minnir okkur á að við erum ekki öll eins og búum við ólíkar aðstæður og kjör.
25.06.2026
Í aðfangabók Héraðssafnsins kemur fram að í mars 1988 hafi safnið tekið á móti ýmsum skjölum sem geymd voru í altari kirkjunnar að Bægisá, bæði frá prestum og sáttanefndum s.s. tilskipanir, verðlagsskrár, sáttaskjöl og fólkstalstöflur frá árunum 1744 - 1901 Skjalið frá okkur að þessu sinni er eitt þessara skjala.
21.05.2026
Á útmánuðum 1862 var hafist handa við að byggja kirkju á Akureyri. Akureyringar höfðu fram að því átt kirkjusókn að Hrafnagili og ýmislegt var búið að spá og spekúlera um breytingar á þeirri tilhögun, því vissulega þurfti stækkandi bæjarfélag að fá sérstakt guðshús. Kirkjunni var valinn staður sunnarlega í Fjörunni og stóð þar sem Minjasafnskirkjan er núna.
16.04.2026
Margir eiga í hugskotinu þá mynd að skjöl séu gömul blöð, kannski krumpuð og gul og jafnvel með rauðum innsiglum. Eins er hugmyndin um að flest skjöl hafi fundist milli þilja í gömlum húsum og komið í ljós við endurbætur húsanna lífsseig. Við sem vinnum við skjölin vitum, að vissulega eru til skjöl með innsiglum og líka þekkjum við dæmi þess að skjöl hafa verið notuð til þess að laga gólfhalla eða hafa fundist inni í veggjum.
31.03.2026
Vinsamlegast athugið að Héraðsskjalasafnið á Akureyri...
12.03.2026
Það var einhverju sinni að ég var að leita að heimildum um götulýsingar á Akureyri og upphaf þess ágæta siðar. Í því skyni leit ég yfir atriðaorðalista við fundargerðabók bæjarstjórnar 1890-1900 og á listanum brá fyrir ,,Gunnvöru í Gilinu”. Mín fyrstu viðbrögð voru eitthvað á þá leið að hugsa: geta þessir 19. aldar karlar ekki einu sinni sýnt konum þá virðingu að skrifa eftirnafn þeirra?
05.02.2026
Jakob V. Havsteen (1844-1920) etatsráð og kaupmaður á Akureyri var áhugamaður um hvalveiðar og vildi að Íslendingar væru a.m.k. þátttakendur í þeim veiðum.
Á Héraðsskjalasafninu er varðveitt skjal þar sem J.V. Havsteen lýsir ferð sinni og átta manna út á Pollinn, höfn Akureyringa, til þess að veiða hval.
19.01.2026
Árið 2025 fékk Héraðsskjalasafnið á Akureyri styrki frá Þjóðskjalasafni Íslands til að mynda fundargerðabækur bygginganefndar