Hver var Halldóra? Af hverju Halldóruhagi?
20.03.2025
Halldóra Bjarnadóttir var fædd 14. október 1873. Hún var skólastjóri Barnaskólans á Akureyri frá 1908, fyrsti formaður Sambands norðlenskra kvenna ásamt því að vera ritstjóri tímaritsins Hlínar. Foreldrar Halldóru voru Bjarni Jónasson bóndi á Hofi í Vatnsdal og Björg Jónsdóttir. Þau skildu og fór faðir hennar til Vesturheims árið 1883.