Fréttir

Davíð frá Fagraskógi og „Brennið þið vitar“

„Hjartað heimtar meira en húsnæði og brauð“ eru lokaorðin í ljóði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi Dalabóndi. Ljóðið birtist í Í byggðum árið 1933 og flokkast líklega ekki með þekktari ljóðum Davíðs en er þörf áminning þess að hamingjan er ekki endilega þar sem silfið og fjörið er. Davíð orti ekki bara ljóð sem gaman er að syngja, hann sagði okkur svo margt í ljóðunum.