Fréttir

Jólamyndir

Núna á aðventunni fengum við nokkrar myndir úr kjörbúðum KEA.  Margar þeirra voru teknar á búðarfundum þar sem bæjarbúum voru kynntar helstu nýjungar og einnig gátu þeir komið á framfæri óskum og ábendingum varðandi þjónustu og vörur.  En þarna voru líka nokkrar jólamyndir.  Sýnishorn er að finna hérna.

Sölubúð á hjólum

Árið 1953 var tekin upp sú nýlunda að sérstakur sendibíll var gerður út á vegum Brauðgerðar KEA og fór um nágrannasveitirnar einu sinni í viku. Brauðbíllinn var á ferðinni alla virka daga frá 10 að morgni fram að kvöldmat.