30.05.2024
Það eru sjálfsagt margir sem lenda í því einhverntíman á æfi sinni að þurfa að meta sál sína til fjár og það trúlega oftar en einusinni, sumir margoft. Ef til vill ummyndast andlitið á ýmsum í stórt spurningarmerki með löngu – löngu – þankastriki fylgjandi á eftir, við lestur þessa upphafs. En þetta er engin misritun.
21.05.2024
Í aðfangabók safnsins kemur fram að 31. maí árið 2000 hafi Dýrleif Skjóldal afhent bréfasafn sitt til varðveislu. Jafnframt kemur fram að safnið sé lokað og ekki megi opna það fyrr en árið 2024.
Dýrleif Skjóldal hét fullu nafni Guðríður Dýrleif Kristjánsdóttir Skjóldal. Hún fæddist á Ytra-Gili í Hrafnagilshreppi 9. maí 1924. Hún var dóttir hjónanna Kristjáns Pálssonar Skjóldal (1882-1960) og Kristínar Gunnarsdóttur (1892-1968) en þau bjuggu á Ytra-Gili 1913-1960 og Kristín til 1961. Dýrleif ólst upp á Ytra-Gili en fluttist til Akureyrar 1961. Hún lést á Akureyri 25. desember 2022.
Þegar í ársbyrjun fórum við að velta fyrir okkur hvenær best væri að opna pakkann, hvort tilefni væri til þess að gera það með viðhöfn, hvort við ættum að bjóða gestum til okkar af því tilefni o.þ.h. Í samráði við börn hennar var pakkinn var opnaður 8. maí s.l. og voru þau fyrstu gestirnir til þess að skoða innihaldið.
Á næstu vikum verður safnið skráð og gert aðgengilegt en auk bréfasafnsins eru m.a. persónuleg skjöl og ferðaminningar í safninu.
02.05.2024
Skjal vikunnar hefur skráningarnúmerið G-40/5 og kom til safnsins 24.9.1970, frá Amtsbókasafninu. Héraðsskjalasafnið var formlega stofnað 1.6.1969 en undirbúningurinn hafði þó staðið frá því um sumarið 1967.