Fréttir

Skjal í blikkdós og Jón Chr. kirkjusmiður

Á útmánuðum 1862 var hafist handa við að byggja kirkju á Akureyri. Akureyringar höfðu fram að því átt kirkjusókn að Hrafnagili og ýmislegt var búið að spá og spekúlera um breytingar á þeirri tilhögun, því vissulega þurfti stækkandi bæjarfélag að fá sérstakt guðshús. Kirkjunni var valinn staður sunnarlega í Fjörunni og stóð þar sem Minjasafnskirkjan er núna.