Fréttir

Fundur á Grund með Hannesi Hafstein

Í aprílmánuði árið 1903 fékk Pétur Ólafsson á Hranastöðum svohljóðandi orðsendingu frá J.V. Havsteen: Kæri vin! Nú er ákveðið að fundur verður á Hrafnagili á fimmtudaginn þ. 16. þ.m. Kl. 1 e.h.d. Hannes Hafstein boðar hann og Kl. Jónsson verður með, Sra Jónas var hér í gær og boðar fundinn og lánar hús, fundarboðið fylgir og biðjum við yður að finna Sigurð á Merkigili og fleiri.