Bað um styrk til að reka baðhús fyrir bæjarbúa
09.10.2026
Í síðasta pistli okkar kom Guðríður Norðfjörð við sögu en hún undirbjó og stofnaði fyrsta kvenskátafélagið á Akureyri. Það var árið 1923. Guðríður var Jónsdóttir og kom ásamt Snæbirni Norðfjörð frá Ísafirði til Akureyrar vorið 1921. Um haustið voru þau gefin saman í hjónaband og eftir það var hún Guðríður Norðfjörð.