Fréttir

Etatsráð Havsteen veiðir hval á Pollinum

Jakob V. Havsteen (1844-1920) etatsráð og kaupmaður á Akureyri var áhugamaður um hvalveiðar og vildi að Íslendingar væru a.m.k. þátttakendur í þeim veiðum. Á Héraðsskjalasafninu er varðveitt skjal þar sem J.V. Havsteen lýsir ferð sinni og átta manna út á Pollinn, höfn Akureyringa, til þess að veiða hval.