Lík þjóðskáldsins borið að heiman í kirkjugarð
27.02.2025
Í Hagahverfinu má finna götuna Matthíasarhaga. Gatan er nefnd eftir Matthíasi Jocumssyni skáldi, sem fæddist 11. nóvember 1835 á bænum Skógum í Þorskafirði. Hann bjó á Skógum hjá foreldrum sínum til 11 ára aldurs. Matthías stundaði síðan ýmis störf, aðallega sveitavinnu og sjómennsku en einnig verslunarstörf í Flatey.