Fleiri fundargerðarbækur byggingarnefndar og manntöl Akureyrarbæjar nú á netinu

Árið 2025 fékk Héraðsskjalasafnið á Akureyri styrki frá Þjóðskjalasafni Íslands til að mynda fundargerðabækur bygginganefndar Akureyrarbæjar frá árunum 1941-1959 annars vegar og manntöl Akureyrarbæjar frá árunum 1950-1954 hins vegar. Styrkurinn er hluti af miðlunarverkefni ÞÍ og felur í sér að teknar eru myndir af ákveðnum skjölum á safninu og þau birt á skjalavef safnsins.
Myndatakan hófst í júlí 2025 og voru samtals teknar 6269 myndir. Verkefninu er nú lokið og er því hægt að skoða allar íbúaskrár Akureyrar frá 1902-1954 á skjalavefnum.


Á skjalavefnum er hægt að skoða myndir af elstu gjörða-, bréfa- og virðingabókum sveitarfélaga, gjörðabókum sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu, gjörðabókum margra félaga á safnsvæðinu, og ýmsu fleiru.
Skjalavefurinn opnaði 2017 og er heildarfjöldi mynda á honum tæplega 100.000 þúsund.