Sjómannadagurinn á Akureyri

Sjómannadagurinn er fyrsti sunnudagurinn í júní ár hvert og er hann hátíðisdagur allra sjómanna. Dagurinn var líklega fyrst haldinn hátíðlegur á Akureyri árið 1939, en fyrr tíðkaðist að halda sérstakar sjómannamessur í kirkjum. Árið 1987 var dagurinn lögskipaður frídagur sjómanna.

Á Héraðsskjalasafninu eru til skjöl sem tengjast sjómannadeginum og má sjá hér dæmi um þau.