Kvennasöguganga um Oddeyrina 19. júní

Nielsina Sophia Jensen við hús sitt á Oddeyri, en þar hafði hún brauðgjörð.
Nielsina Sophia Jensen við hús sitt á Oddeyri, en þar hafði hún brauðgjörð.
Í tilefni kvenréttindadagsins þann 19. júní verður boðið upp á fyrstu kvennasögugönguna um Oddeyrina. Saga kvenna á eyrinni er mörgum hulin og því gefst hér kjörið tækifæri til að fá innsýn í líf og störf þeirra en konur á eyrinni sáu t.d. um ýmiskonar rekstur um aldarmótin 1900 og fram á miðja 20. öld. Örn Ingi Gíslason mun leiða gönguna og varpa ljósi á líf kvenna og ýmsar uppákomur, hefðir og venjur sem ríktu á eyrinni.


Í ár eru 150 ár frá því að Vilhelmína Lever greiddi atkvæði í fyrstu bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri árið 1863, en konur öðluðust ekki kosningarétt til sveitarstjórna fyrr en 20 árum síðar. Vilhelmína bjó á nokkrum stöðum á Akureyri m.a. á eyrinni en hún var mikil framkvæmdakona rak t.d. vertshús og var brautryðjandi í tómstundamálum bæjarbúa þegar hún setti upp “strýtuflöt” við veitingahúsið sitt í fjörunni. Saga Jónsdóttir leikkona mun segja okkur frá Vilhelmínu í tilefni af kosningaafmæli hennar.
Kvennasögugangan hefst við Ráðhústorg kl. 16:30 og lýkur við Gamla Lund. Gangan er öllum opin en hún er í boði Jafnréttisstofu, Héraðsskjalasafnsins á Akureyri, Minjasafnsins á Akureyri, Zontakvenna og Akureyrarbæjar.