Kvennafrídagurinn 24. okt.

Í dag er 41 ár frá því að konur fylktu liði og komu saman víða um land til að vekja athygli á ójafnri stöðu og launamun kynjanna.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum eru konur á Íslandi að meðaltali með 28,7% lægri tekjur en karlar og hafa samkvæmt því lokið vinnudegi sínum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur. Konur um land allt ætla því að ganga út af vinnustöðum kl. 14.38 í dag en þá er miðað við vinnutímann 9-17.

Á Héraðsskjalasafninu á Akureyri vinna eingöngu konur og því verður lokað þar frá kl. 14:38 en á mánudögum er annars opið til kl. 18:00

Hér fyrir neðan er frétt sem birtist í Degi 29. október 1975 og segir frá kvennafrídeginum 24. október.