Margrétarhagi
Í mars 2014 kom nafnanefnd Akureyrarbæjar saman til þess að fjalla um nöfn á götum í nýju hverfi, Hagahverfi. Á fundinum varð til listi með 12 götunöfnum, sem nefndin lagði til að notuð yrðu í hverfinu. Eins og bæjarbúar þekkja eru göturnar kenndar við fólk og við val þeirra hafði nefndin það m.a. að leiðarljósi að um væri að ræða kunna látna Akureyringa, sem bæri heiður vegna starfa fyrir bæjarsamfélagið og hefði með frægð sinni og verkum auglýst nafn bæjarins.
Margrétarhagi er kenndur við Margréti Schiöth eða Elise Margrethe Schiöth, konan sem kenndi bæjarbúum að unna blómum og rækta þau.
Margrét var ein af stofnendum Lystigarðsfélags Akureyrar og frá árinu 1921 tók hún við forystu félagsins og allri umsjá garðsins fram til ársins 1953, en þá afhenti hún bænum garðinn að gjöf. Þar stendur í dag brjóstmynd af henni.
Margrét er fædd þann 31. júlí 1871 í Vejen á Jótlandi, 1899 flyst hún til Akureyrar og giftist Axel Schiöth og bjuggu þau að Hafnarstræti 23. Margrét hafði mikinn áhuga á garðrækt og fékk hún oft send að utan bæði fræ og plöntur sem hún plantaði í garðinum við húsið.
Var garðurinn hennar það glæsilegur að hann vakti athygli konungshjónanna Kristjáns X og Alexandrine drottningar þegar þau heimsóttu Akureyri árið 1926. Drottningin og Margrét héldu sambandi eftir það.
Á sjötugsafmæli Margrétar var hún kjörin heiðursborgari Akureyrarbæjar, fyrir það mikla og óeigingjarna starf sem hún vann í Lystigarðinum.
Margrét lést þann 20. júní 1962.
