Guðmundur Benediktsson (1907-2001), frá Breiðabóli Svalbarðsströnd

Guðmundur Benediktsson
Guðmundur Benediktsson

Á þessu ári eru 110 ár liðin síðan Guðmundur Benediktsson fæddist.  Guðmundur er jafnan kenndur við Breiðaból á Svalbarðsströnd en þar ólst hann upp og bjó síðan með systkinum sínum til 1962.  Guðmundur fór í bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan árið 1929.

Sem ungur maður gekk Guðmundur í Ungmennafélagið Æskan og var í stjórn þess í 25 ár.  Hann var lengi fulltrúi Æskunnar á þingum UMSE og oft forseti þeirra þinga. Guðmundur var í stjórn UMSE í 7 ár og var oft fulltrúi á þingum UMFÍ.

Guðmundur var ákveðinn bindindismaður og var lengi formaður áfengisvarnarnefndar.  Hann var í hreppsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps, var forðagæslumaður, fjallskilastjóri og gangnaforingi og var sýslunefndarmaður um tíma.

Guðmundur var í stjórn Búnaðarfélags Svalbarðsstrandar og gjaldkeri félagsins í 17 ár. Hann var í sóknarnefnd Svalbarðssóknar og var hvatamaður um byggingu kirkjunnar sem byggð var og vígð í maí 1957.

Árið 1962 flutti Guðmundur til Svalbarðseyrar og vann eftir það hjá K.S.Þ. enda traustur samvinnumaður.

 

Yfirlit yfir skjalasafn Guðmundar má sjá hér