Gleymdur atburður - sýning endurtekin að hluta

Árlega halda skjalasöfn á Norðurlöndum kynningardag, annan laugardag í nóvember.  Unnið er út frá ákveðnu þema hverju sinni en árið 2008 var þemað Gleymdir atburðir.  Gleymdi atburðurinn hjá okkur hérna á skjalasafninu var 100 ára afmæli Akureyrarkaustaðar 1962 og var sett upp sýning með skjölum, munum  og myndum frá afmælinu og varðveitt eru hér. 

Mánudaginn 21. maí munum við setja þessa sýningu að hluta til upp aftur og mun hún standa í tvær vikur eða til og með 1. júní.