Dóttir - mamma - amma ?

Dóttir - mamma - amma er þemað á Akureyrarvöku, árlegri bæjarhátíð í tilefni af afmælisdegi Akureyrarbæjar. 

Því er upplagt að birta hér mynd af þremur konum sem ekki er vitað hverjar eru, en gætuð passað inn í ofangreint þema. Myndin er úr einkaskjalasafni Önnu Kristinsdóttur fyrrum húsfreyju í Fellsseli í Köldukinn.

Ef einhver þekkir konurnar eru ábendingar vel þegnar í síma 460-1290 eða á netfangið herak@herak.is