Bæjarbragur í upphafi fullveldis

Ljósmyndari: Hallgrímur Einarsson
Ljósmyndari: Hallgrímur Einarsson

Laugardaginn 1. desember kl. 14:00 verður opnuð sýningin Bæjarbragur: Í upphafi fullveldis. Um er að ræða samsýningu þriggja safna: Amtsbókasafns, Hérðasskjalasafns og Minjasafns. Á sýningunni verða til sýnis ljósmyndir frá Akureyri í upphafi fullveldis ásamt upplýsingum sem unnar eru upp úr skjölum og bókum frá sama tímabili. Hver var kjörsókn á Akureyri í kosningum um sambandslagafrumvarpið þann 19. október 1918? Hvernig leit bærinn út í upphafi fullveldis? Söfnin þrjú munu leitast við að svara upptöldum spurningum og fleirum til á fyrirhugaðri samsýningu sem standa mun út janúar 2019. Sýningin sem minnist aldarafmælis fullveldis Íslands kallar á samstarf þriggja safna og veitir íbúum og gestum bæjarins tækifæri á að fræðast um söguna, samfélagið og fullveldishugtakið.

Verið hjartanlega velkomin.