Alþjóðlegi skjaladagurinn 9. júní

Félag héraðsskjalavarða stendur fyrir málþingi  fyrir héraðsskjalaverði um skjalavörslu leikskóla og grunnskóla í tilefni Alþjóðlega skjaladagsins 9. júní 2010.
Fjallað verður um skjalavistunaráætlanir og bréfalykla fyrir leikskóla og grunnskóla og velt upp spurningum um vörsluvanda á því sem myndað er inn í tölvukerfið Mentor og hugmyndum að lausnum á honum. Hér verður skýrt nánar frá málþinginu að því loknu.