Afmælisdagur Akureyrarkaupstaðar er í dag - höfuðdag

Í dag er Höfuðdagurinn en 29. ágúst hefur heitið svo frá því að Heródes lét hálshöggva Jóhannes skírara að áeggjan konu sinnar og stjúpdóttur árið 31 e.kr. Gömul trú er sú að veðurfar muni breytast með Höfuðdegi og segir svo frá því á einum stað: „Bregður þá vanalega veðráttu og helzt þá hið sama í 20 daga."
Akureyrarkaupstaður er 151 árs í dag og er þess skemmst að minnast að mikil hátíðahöld voru á Akureyri í tilefni af 150 ára afmælinu árið 2012. Hægt er að rifja upp eldri fréttir hér á síðunni sem birtust vikulega af tilefni afmælisins og einnig er enn hægt að skoða síðuna https://www.facebook.com/Akureyri150 en þar má sjá margt fróðlegt og skemmtilegt um afmælisárið.