8. mars 1866

Sveinn Þórarinsson (1821-1869)
Sveinn Þórarinsson (1821-1869)

Eftirfarandi skrifaði Sveinn Þórarinsson amtsskrifari í dagbók sína 8. mars 1866:

 

Logn og frostlaust veður blítt.  Nú er landfastur ís fyrir öllu norðurlandi og hefir sumstaðar orðið töluverður höfrungafengur. Finsen vitjaði mín og var ég aumur.  Austan póstur kom loksins.  BF Sigurbirni.

 

Þegar Sveinn Þórarinsson skrifaði þessar línur bjó hann á Akureyri, í því húsi sem seinna átti eftir að vera þekkt sem Nonnahús enda umræddur Sveinn faðir Nonna.  Finsen, sem Sveinn talar um, var Jón Finsen héraðslæknir í austurhéraði norðuramtsins.  BF stendur fyrir bréf frá.