Fólkið í kaupstaðnum - Íbúar Arabíu -

Teikning af Ara Sæmundsen umboðsmanni. Torfbær hans var kallaður Arabía.
Teikning af Ara Sæmundsen umboðsmanni. Torfbær hans var kallaður Arabía.

Í manntali í Hrafnagilssókn 31.12. 1862 má sjá hverjir bjuggu á Akureyri þegar bærinn fékk kaupstaðarréttindin. Húsin eru númeruð og byrjað er að taka manntal í húsi númer 1 syðst í Fjörunni. Hver fjölskylda fær síðan bókstaf aftan við númerið til aðgreiningar. Sum húsin fengu nöfn og voru gjarnan kennd við eigendur, svo sem Salbjargarbær, Indriðahús, Arabía, Davíðsbær o.s.frv.
Föstudaginn 24. ágúst verður opnuð sýning á Héraðsskjalasafninu, Brekkugötu 17 og ber hún nafnið Fólkið í kaupstaðnum.
Þar eru teknir fyrir íbúar bæjarins og þeim gerð skil í ættfræði og skjölum. Þeir sem vilja rekja ættir sínar til þessa fólksins sem bjó í kaupstaðnum 1862 geta beðið um aðstoð hjá skjalavörðum. Sýningin verður opin til 24. september  kl. 10:00-19:00 á virkum dögum.
Hér verður tekið dæmi um efni á sýningunni og tekið fyrir hús sem stóð á lóðinni Aðalstræti 38. Grímur Laxdal mun fyrstur hafa fengið þessa lóð til að byggja sér íbúðarhús og reisti þar torfbæ sem stóð á baklóð hússins Aðalstræti 38, sem nú er.  Árið 1843 keypti  Ari Sæmundsen af Grími og bjó þar þegar Akureyri fékk kaupstaðarréttindin. Torfbærinn var nefndur eftir Ara og kallaður Arabía.  Seinna eignaðist Þorgrímur Þorvaldsson Arabíu, en hann er vinnumaður hjá Ara árið 1862. Þorgrímur var mikill gleðimaður og hafði lært að dansa hjá Steincke verslunarstjóra. Synir hans, Friðrik og Pétur, tóku gleðina í arf. Báðir spiluðu þeir á harmoniku, stundum fyrir dansi, og sungu í kórum.  Árið 1892 byggðu bræðurnir húsið sem enn stendur á lóðinni. Vestur af því byggði Pétur síðar hlöðu og gripahús á grunni gamla torfbæjarins.

Þann 31.12.1862 bjuggu í húsi númer 17, eða Arabíu, 12 manns:

17a          Ari Sæmundsen umboðsmaður 66 ára
                Sigríður Grímsdóttir kona hans 71 árs
                Pétur Júlíus Sæmundsen ættleiðingur þra 22 ára
                Þorgrímur Þorvaldsson vinnum. 23 ára
                Sigríður Þorvaldsdóttir vinnuk.  28 ára
                Jóhanna Sigurlaug Jónsd. vinnuk. 23 ára
                Jósefína Guðmundsdóttir tökubarn 7 ára
                Benedikt Halldórsson vinnum. 28 ára
17b          Ari Arason tómthúsm. 72 ára
                Arnleif Pálsdóttir kona hans 68 ára
17c           Sveinbjörn Ólafsson timburm. 30 ára
                Margrét Hannesdóttir kona hans 33 ára

Dæmi um ættfræði á sýningunni má sjá hér:

Ari Sæmundsen, f. 16.7.1797 á Krossi í Lundareykjadal, Borgarfirði, d. 31.8.1876 á Akureyri, bókbindari, umboðsmaður, skrifari sýslumanna og tvívegis settur sýslumaður, dannebrogsmaður og skáld, bjó í Krossanesi, Melgerði í Saurbæjarhreppi og Akureyri.  Ari var kosinn í fyrstu bæjarstjórn Akureyrar árið 1863 og sat aðeins í tvö ár, enda orðinn roskinn maður. For.: Sæmundur Jónsson og Guðrún Þorsteinsdóttir hjón á Krossi, Lundareykjadal.
- K.  23.10.1829, Sigríður Grímsdóttir, f. 1.5.1792 í Ytri-Villingadal, Saurbæjarhreppi, d. 20.2.1866 á Akureyri, ljósmóðir. For.: Grímur Magnússon "græðari" og k.h. Sigurlaug Jósefsdóttir, hjón á Espihóli. Ættleitt barn þeirra:
       a   Pétur Júlíus Sæmundsen, f. 26.1.1841 á Stokkahlöðum, Hrafnagilshreppi,
            d. 19.9.1915 á Akureyri, verslunarmaður á Akureyri og í Kaupmannahöfn
            1859-1884, verslunarstjóri Blönduósi 1884-1913.
            - K.  21.7.1875, Magdalena Margrét Sæmundsen, f. 31.1.1844 á Akureyri,
            húsfreyja á Blönduósi. For.: Edvald Eilert Möller, verslunarstjóri og póst-
            meistari á Akureyri og k.h. Margrét Jónsdóttir Möller.
            Börn þeirra:          
                aa  Edvald Sæmundsen, f. 1878, d. 19.9.1926, verslunarstjóri á Blönduósi.
                ab  Ari Sæmundsen, f. 1880, dó ungur.
                ac  Sigríður Sæmundsen Davíðsson, f. 13.11.1882, d. 27.4.1966, húsfreyja
                      á Akureyri.
                ad  Karl Sæmundsen, f. 14.2.1886, stórkaupmaður í Kaupmannahöfn.