Héraðsskjalasafnið er öllum opið án aðgangseyris.
Þjónusta við almenning og sveitarfélög felst m.a. í því að svara fyrirspurnum úr skjölum og aðstoða gesti safnsins.
Enn fremur tekur safnið á móti einkaskjalasöfnum frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum og varðveitir þau þar sem þau veita
aðra innsýn í sögu og mannlíf heldur en skjöl frá opinberum aðilum.
Þjónusta við sveitarfélög felst í því að varðveita skv. lögum þau skjöl sem verða til á þeirra vegum.
Skjalaverðir aðstoða og veita leiðbeiningar við afhendingu og frágang skjalanna.
Gjaldskrá:
Ljósrit A4 35 kr.
Ljósrit A3 50 kr.
Skönnun 300 kr.
Útprentun 35 kr.
Útprentun (lit) 100 kr.








