Gagnaskrá skjalasafnsins er á FileMaker formi og liggur frammi útprentuð á lestrarsal. Skjalaverðir aðstoða við leit í skránni, en gestir geta einnig leitað sjálfir í tölvu ef þess er óskað. Í gagnaskrá eru núna rúmlega 21.600 færslur (ársbyrjun 2010).
Skráin er nú sett hér á vefinn á pdf formi og skiptist í tvo hluta, annars vegar opinber skjöl og hins vegar einkaskjöl. Opinberu skjölin eru skjöl frá Akureyrarbæ, skjöl frá sveitarfélögunum sem að safninu standa og skjöl frá sýslunefnd og byggðasamlögum. Einkaskjölin koma frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum.

Útprentuð gagnaskrá á lestrarsal








