15. apríl 2009 hófst átak Félags héraðsskjalavarða og Kvenfélagasambands Íslands á söfnun skjala kvenfélaga um land allt. Söfnunarátakinu lauk formlega 15. nóvember. Efni norræna skjaladagsins 2009, sem að þessu sinni bar upp á 14. nóvember, tengdist átakinu og var þema dagsins konur og kvenfélög.
Héraðsskjalasafnið á Akureyri tók þátt í skjaladeginum með framlagi á vef skjala-dagsins skjaladagur.is og þann 14. nóvember var opið hús og heitt á könnunni á safninu í Brekkugötu 17 frá kl.
12:00 til 17:00. Þann dag var einnig opnuð sýning sem var helguð kvenfélögum í héraðinu og stóð hún út
nóvembermánuð. Umfjöllun um sýninguna var birt í Vikudegi 26.nóvember, hér má lesa þá umfjöllun í heild sinni.









