Á safninu er ágæt aðstaða til þess að grúska í ættfræði enda er hér að finna kirkjubækur, manntöl, íbúaskrár, niðjatöl, handbækur og fleira gagnlegt í þessu skyni.
Kirkjubækur frá landinu öllu eru á örfilmum en það er nokkuð misjafnt eftir sóknum yfir hvaða tíma þær ná. Elstu bækurnar eru frá því um 1700 og þær yngstu frá því um 1950. Einnig eru hér nokkrar kirkjubækur í ljósriti eða afriti, flestar úr Eyjafirði.
Hér eru þau manntöl sem gefin hafa verið út en einnig nokkuð af manntölum á örfilmum. Manntöl úr Eyjafirði og nærliggjandi héruðum frá 1901, 1910, 1920 og 1930 eru hér í ljósriti.
Auk þess er hér nokkuð af manntalsgögnum frá Akureyrarbæ. Hér er hægt að komast í íbúaskrá bæjarins nokkuð óslitið frá 1901 til 2002 og með því að glugga í manntalsspjöld þá er hægt að rekja búsetu fólks í bænum 1932-1960. Búsetu í sýslunni er hægt að skoða í sóknarmannatölum en síðan íbúaskrár sýslunnar 1966-1988 og í þjóðskrá eftir það.
Á lestrarsal er ágætt safn af handbókum, bæði útgefnar bækur um ákveðnar ættir, niðjatöl, stéttatöl og ábúendatöl og einnig ýmis ljósrit og fjölrit um svipað efni. Í geymslum er margt svipað komið frá einstaklingum, t.d. Þingeyingaskrá Konráðs Vilhjálmssonar og Ábúendatal í Eyjafirði fram eftir Stefán Aðalsteinsson o.fl. o.fl.









