Héraðsskjalasafnið á Akureyri

Bréf Björgvins Guðmundssonar tónskálds Fimmtudaginn 20. okt. afhenti Bjarki Sveinbjörnsson, tónlistarfræðingur Ph.d. fyrir hönd Tónlistarsafns Íslands,

Bréf Björgvins Guðmundssonar tónskálds

Fimmtudaginn 20. okt. afhenti Bjarki Sveinbjörnsson, tónlistarfræðingur Ph.d. fyrir hönd Tónlistarsafns Íslands, safninu nokkur bréf sem Björgvin Guðmundsson tónskáld skrifaði vini sínum Guttormi J. Vigfússyni skáldi í Lundar, Manitoba.
Bréfin skrifaði Björgvin þegar hann var við nám við Royal College of Music í London á árunum 1926-1928. Í bréfunum lýsir hann m.a. upplifun sinni af lífi og listum í London, honum líst ekki meira en svo á þróun mála í listheiminum og talar t.d. um að hver sönghöllin eftir aðra sé lögð niður og breytt í hnefaleikahús, jafnvel Albert Hall.  Norma Guttormsson í Winnepeg afhenti Bjarka þessi bréf til varðveislu á Tónlistarsafni Íslands, en hann taldi þau betur komin í Héraðsskjalasafninu á Akureyri þar sem önnur gögn frá Björgvin og Kantötukórnum eru varðveitt.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf