mánudagur 15.mars 2010 - Lestrar 44

Héraðsskjalasafninu hafa borist 18 afhendingar það sem af er þessu ári. Í síðustu viku komu hingað gögn frá sóknarnefnd Glæsibæjarkirkju og einnig gögn frá Norðurverki hf.
Fyrr á árinu höfum við m.a. tekið á móti gögnum frá Hestamannafélaginu Létti, Kvenfélaginu Framtíðinni og Kvenfélaginu Hlíf. Af öðrum afhendingum má nefna gögn frá Héraðsnefnd Eyjafjarðar, gögn frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og teikningar frá bæjarskrifstofunum.








